Forsíða arrow Raki í íbúðum
Raki í íbúðum


Raki í íbúðum eru kvörtunarmál sem oft koma til mín.  Skipta má þessu í nokkra þætti sem eru eftirfarandi.


1. Þegar mikill raki er í svefnherbergisúthorni og þar jafnvel farinn að myndast sveppagróður.

Þessi sveppagróður myndast vegna þess að mikill raki er í herberginu.  Við mennirnir erum sannkallaðar gufuvélar og viljum gjarnan sofa í lokuðum herbergjum.  Nauðsynlegt er að hafa opinn glugga og opna hurð á nóttunni og hafa þann háttinn á einnig yfir daginn.  Sjá mynd.


2. Þegar mikill raki er í baðherbergi og sveppagróður að myndast.

Í baðherbergi er að jafnaði 3-5 vatnslásar er vatn gufar uppúr og því er þarna mikil rakamyndun.  Þarna þarf að hafa opinn glugga allan sólarhringinn, ef ekki er gluggi þarf að hafa viftu sem blæs út.  Þetta á ennfrekar við þar sem þvottavélar og jafnvel þvottasnúrur eru.  Gott ráð er að hafa tappa í baðkari og vaski og hella jurtaolíu í vatnslása til að tefja fyrir uppgufun.


3. Þegar það mikill raki er í íbúðum svo að allt gler er rennvott að innan.

Undirritaður hefur komið að mörgum íbúðum sem hafa ekki verið loftræstar í langan tíma og er það eins og að koma í gufuklefa.  Það er nauðsynlegt að opna glugga og svalahurðir annað slagið og lofta út.  Þetta kemur aldrei fram í gömlum timburhúsum vegna þess hversu óþétt þau eru.  Í þeim fer hiti út um illa einangraða veggi og þéttist á innanvert bárujárnið og og lekur niður um samskeyti járns.  Bárujárnið ryðgar fljótt vegna þessa.

 


4. Þar sem raki kemur fram í nýjum íbúðum.

Vegna hins mikla hraða í byggingaframkvæmdum vill það brenna við að steinsteypan nær ekki að gufa út áður en flutt er inn.  Gott ráð er að fara að öllu með gát, rakamæla t.d. gólf áður en gólfefni eru lögð.  Einnig er ráðlegt að mála ekki fullnaðarmálun fyrr en eftir ca 2 ár.  Þetta er gert til að leyfa veggjum að anda út og sprungum að koma fram.


 

raki í hornum

Hér má sjá sveppgróður í horni svefnherbergis sem er illa loftræst.

 


Magnús Þórðarson.
matsmaður